Verslanir

Verslun Nóatúni 17 Reykjavík

Verslunin er opin frá kl. 9-18 virka daga og kl. 11-16 á laugardögum

Sölusvið

Sölusvið Tölvulistans er til húsa í glæsilegu 300fm húsnæði í Nóatúni 17. Þar er boðið upp á landsins mesta úrval af tölvum og tölvubúnaði. Sölufulltrúar okkar eru með víðtæka reynslu og mikla þekkingu og aðstoða þig við kaupin fyrir heimilið eða fyrirtækið.

Netfang: verslun(a)tolvulistinn.is

Fyrirtækjasvið

Fyrirtækjasvið Tölvulistans er staðsett í verslunarhúsnæði okkar að Nóatúni 17. Hlutverk fyrirtækjasviðs er að útvega stórum sem smáum fyrirtækjum bæði vélbúnað og hugbúnað í samræmi við óskir hverju sinni. Fyrirtækjasvið hefur einnig umsjón með þjónustusamningum sem gerðir eru m.t.t. þarfa einstakra fyrirtækja.

Starfsmenn fyrirtækjasviðs búa yfir áralangri reynslu og yfirgripsmikilli þekkingu þegar kemur að vali á tölvum, þjónustu og tengdum búnaði.

Netfang: sala(a)tolvulistinn.is


_______________________________________________________________________________

Verslun Strandgötu 9 Akureyri

Verslunin er opin frá kl. 9-18 virka daga og kl. 11-16 á laugardögum

Sölu- og þjónustusvið

Útibú Tölvulistans á Akureyri var opnað að Glerárgötu 36 þann 15.ágúst 2002. Á Akureyri starfa 4 reyndir starfsmenn sem taka vel á móti þér og aðstoða þig við kaup, uppfærslur og viðgerðir á tölvum og búnaði ásamt afritun gagna, vírushreinsun og uppsetningu á vírusvarnarforritum. Verslunin fluttist svo að Strandgötu 9 þann 6. Nóvember 2007

Netfang: akureyri(a)tolvulistinn.is

 

_______________________________________________________________________________

Verslun Hafnargötu 90 Keflavík

Verslunin er opin frá kl. 9-18 virka daga og kl. 11-16 á laugardögum

Sölu- og þjónustusvið

Útibú Tölvulistans í Keflavík var opnað að Hafnargötu 90 þann 7.mars 2005. Í Keflavík starfa 3 þaulvanir starfsmenn með áralanga reynslu í sölu og ráðgjöf við kaup á tölvum og búnaði.

Á verkstæði er í boði öll almenn þjónusta s.s. viðgerðir á tölvum og tölvubúnaði, uppfærslur, afritun gagna og uppsetningar á vírusvarnarforritum svo eitthvað sé nefnt en auk þess er boðið uppá þjónustu við fyrirtæki.

Netfang: keflavik(a)tolvulistinn.is

_______________________________________________________________________________

Miðvangur 2-4 Egilsstaðir

Verslunin er opin frá kl. 10-18 virka daga og kl. 11-16 á laugardögum

Sölu- og þjónustusvið

Útibú Tölvulistans á Egilsstöðum er við Miðvang 2-4 og var opnað 11.ágúst 2006.

Starfsmenn sem hafa áralanga reynslu í sölu og ráðgjöf aðstoða viðskiptavini við kaup á tölvum og tölvubúnað en að auki er í boði öll almenn þjónusta á verkstæði s.s. viðgerðir á tölvum og tölvubúnaði, uppfærslur, afritun gagna og uppsetningar á vírusvarnarforritum svo eitthvað sé nefnt.

Netfang: egs(a)tolvulistinn.is


_______________________________________________________________________________

Austurvegur 34, Selfoss

Verslunin er opin frá kl. 9-18 virka daga og kl. 11-16 á laugardögum.

Sölu- og þjónustusvið

Tölvulistinn opnaði sitt sjöunda útibú á Selfossi í stórglæsilegu húsnæði við Austurveg 34 þann 24. Janúar 2008.  Þar starfa dugnaðarmenn með mikla reynslu og þekkingu á tölvum og tölvubúnaði, veita ráðgjöf og aðstoða við kaupin fyrir bæði heimili og fyrirtæki.

Netfang: selfoss(a)tolvulistinn.is

_______________________________________________________________________________

Reykjavíkurvegur 66, Hafnarfirði

Verslunin er opin frá kl. 9-18 virka daga og kl. 11-16 á laugardögum.

Sölu- og þjónustusvið

Tölvulistinn opnaði sitt áttunda útibú í Hafnarfirði í stórglæsilegu húsnæði við Reykjavíkurveg 66 þann 6. mars 2008.  Þar starfa dugnaðarmenn með mikla reynslu og þekkingu á tölvum og tölvubúnaði, veita ráðgjöf og aðstoða við kaupin fyrir bæði heimili og fyrirtæki.

Netfang: hafnarfjordur(a)tolvulistinn.is

_______________________________________________________________________________



Nýjasta auglýsingin

Nýjasta auglýsingin

Skoða fleiri auglýsingar


Fyrirtækjavefur Tölvulistans